Hæ hó
Jæja nú er innanhústímabilið að skella á af fullum þunga. Mótin sem eru framundan eru þessi
- 28.jan er Héraðsmót HSK innanhúss á Hvolsvelli
2.-3.febrúar er Meistaramót Íslands 15-22 ára í Höllinni
9.-10.febrúar er Meistaramót Íslands í Höllinni
2.mars er Unglingamót HSK á Hellu
Ég vona að allir hafi þau markmið að mæta á öll mótin og BÆTA SIG, því frjálsar snúast um það að stökkva hærra, hlaupa hraðar og kasta lengra :-)
Þegar Unglingameistaramótið er þá gisti ég á Hilton því ég er að fara á árshátíð Eimskips um kvöldið, en spurningin er hvað þið viljið gera???? getið t.d tékkað á farfuglaheimilinu???? eða gist saman í íbúð hjá einhverri frænku eða frænda?????? endilega gerið eitthvað saman, mér finnst félagslegi þátturinn ekki búinn að vera nógu öflugur í vetur. Við verðum að lyfta andanum upp saman. Það vantar eiginlega að Fjóla geti farið að æfa aftur, hún er LANG öflugust að koma með hugmyndir .
Ég var síðan að spá í að æfingin á mánudaginn yrði á Selfossi og kannski gætum við þá farið til RVK á miðvikudaginn og síðan aftur mánudaginn 28.jan. Við verðum eiginlega lágmark að ná 2 æfingum í RVK fyrir Unglingameistaramótið.
Jæja allir og þá meina ég allir að kommenta og ég vil að það sé að lágmarki 2 sem skrifa færslu í hverri einustu viku.
koma svo
ÁFRAM SELFOSS
Ps: varð að fá smá útrás þar sem ég er búin að vera lasin heima í 3 daga 